|
Smáratún er staðsett rétt um 100 km frá Reykjavík. Ekið er um þjóðveg nr. 1 að Hvolsvelli þar sem valinn er vegur nr. 261 inn Fljótshlíð. Smáratún er staðsett 13 km frá Hvolsvelli. Malbikaður vegur er alla þessa leið.
Smáratún er í stúkusæti gagnvart Eyjafjallajökli og sjást ummerki eldgossins afar vel frá hótelinu. Aska hefur ekki fallið í teljandi mæli við Smáratún og eftir rigningarnar í vor hefur ekki verið öskufjúk. Loftið er hreint og tært - öllu er óhætt.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af eldgosinu sem var á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.
Myndir af gosinu séð frá Smáratúni.
Fleiri myndir af gosinu.
TVEIR KÓRAR OG KOKKUR - 11. SEPTEMBER 2010
Karlakórinn Fjallabræður og kvennakórinn Ljósbrá halda sameiginlega tónleika í Hótel Fljótshlíð. Tónleikarnir byrja klukkan 21:00.
Miðar seldir í forsölu á kr. 2000.-
Ingi Þór Jónsson, gestakokkur, mætir með haustmatseðilinn sinn og býður uppá þriggja rétta máltíð fyrir tónleikana á kr. 4500.-
Borðapantanir í síma 487 1416
TÖKUM VEL Á MÓTI HAUSTINU!
|